3.2.2008 | 00:01
grænir sjeikar
Aldrei að segja aldrei
..
Það geta allir og allt breyst. Það á aldrei að segja aldrei
Ég á vin sem alla tíð hefur verið sá mesti anti sportisti, anti grænmetis og heilsumanneskja sem ég held að gangi á jarðarkringlunni. Það skiptir ekki máli hvað sagt er, ef það tengist hollustu í einhverri mynd þá kemur þvílíki fyrirlesturinn um hvað bla bla bla bla þetta sé nú allt öfgakennt og afi hans hafi nú lifað á tólgum og uppstúf og orðið 100 ára. Ég samgleðst bæði honum og afa hans og bendi honum á að það væri nú aldeilis mikið sem sparaðist í heilbrigðiskerfinu ef allir væru nú eins og hann afi hans, og nóta bene ef ég ætti að tilnefna 1 manneskju sem ætti að klóna þá myndi ég tilnefna gamla manninn.
Þessi vinur minn flutti erlendis fyrir nokkrum árum og ég rakst á hann núna um daginn. Hann var með nýrri kærustu, sérstaklega glæsilegri konu. Hæ Solla, mig langar til að kynna þig fyrir konunni minni. Hún er í svipuðum geira og þú, heldur námskeið í jóga og reiki. Ég kynnti mig og við tókum tal saman. Og þrátt fyrir að ég sé hvorki að kenna jóga eða reiki þá náðum við að spjalla fullt. Ég er búin að heyra svo mikið um þig sagði konan og brosti, Ég var farin að hlakka til að hitta þig.
Síðan opnaði vinur minn sig og sagði að hann væri allur annar eftir að hún hefði komið honum upp á grænu sjeikana. Ég þurfti að hafa mig alla við að springa ekki úr hlátri. Og ég næstum því gleypti tunguna mina þegar hann sagði mér stolltur að hann væri að læra kristalla heilun á helgarnámskeiðum. Svona getur nú ástin aldeilis galdrað í lífi fólks.
Hann hefði meira að segja tekið yfirmann sinn (bankastjóra í íslenskum banka erlendis) í smá meðferð og væri sá eins og nýslegin túskildingur.
Grænir sjeikar
Grænir djúsar og grænir hristingar innihalda mikið af góðum trefjum.
Uppleysanlegu trefjarnar í djúsnum, binda kólestról í þörmunum og losa líkamann við það, hjálpa og örva hægðir og stabilísera blóðsykurinn.
Það sem grænu hristingarnir hafa fram yfir djúsana er að þeir innihalda bæði uppleysanlegar og óuppleysanlegar trefjar. Óuppleysanlegu trefjunum má líkja við svamp, þær geta dregið í sig margfalda stærð sína af eiturefnum sem þær taka með sér útúr líkamanum. Með grænum hristingum getum við innbyrt mjög mikið magn af græna litnum ásamt öðru grænmeti og ávöxtum.
Með því að nota blandarann erum við að brjóta hráefnið niður til þess að auðvelda meltinguna (formelta) og gefa líkamanum greiðari aðgang að næringunni. Ef við erum dugleg að auka græna litinn í fæðunni gerir það okkur kleift að þola betur þann mat sem við erum að borða dags daglega hver svo sem hann er.
Ég hef hérna fullt af glænýjum uppskriftum af grænum sjeikum og hvet ykkur til að prófa ykkur áfram og finna út hvað hentar ykkar kroppi.
Gangi ykkur sem allra best
Solla
Grænn súkkulaði sjeik
2 dl kókosvatn eða vatn
100g spínat*
5 döðlur*
2 bananar
1 msk kakóduft*
½ tsk alkaliveduft
nokkrir klakar
Byrjið á að setja kókosvatnið eða vatnið í blandarann ásamt spínatinu og döðlunum og blandið vel saman. Setjið restina af uppskriftinni útí og blandið þar til þetta er orðið silkimjúkt.
Græna gúrkan
2 dl kókosvatn eða vatn eða nýpressaður eplasafi
100g spínat
½ agúrka
½ lime
½ avocado
¼ búnt ferskur kóríander eða annað grænt krydd ef vill
Skerið agúrkuna í sneiðar, afhýðið límónuna og avókadóið og skerið í bita. Allt nema avókadóið er svo sett í blandara og blandað þar til silkimjúkt. Bætið avókadóinu útí og blandið vel.
Græna steinseljan
2 dl kókosvatn
1 búnt steinselja
100g romain salat, skorið í bita
100g græn vínber
slatti fersk myntulauf
½ tsk alkalive duft ef vill
nokkrir ísmolar
Setjið kókosvatnið/vatnið í blandara ásamt steinselju og blandið smá stund. Bætið restinni af uppskriftinni útí og blandið þar til allt er vel blandað saman og kekklaust.
Grænn og ferskur ávaxta og berjasjeik
2 ½ dl ananassafi eða kókosvatn
safinn úr ½ limónu
2 dl ferskir eða frosnir mangóbitar
2 dl frosin ber, t.d. bláber, hindber eða jarðaber
50 g spínat
½ - 1 avókadó, afhýtt og skorið í bita
Setjið vökvann í blandarann ásamt mangó bitum og blandið vel. Bætið frosnum berjum útí og blandið, bætið síðan spínati og avókadó útí og blandið þar til allt er orðið silkimjúkt.
Græna próteinbomban kaaabúmmmm
2-3 dl möndlumjólk eða sojamjólk
75g tófú
2 dl jarðaber, skorin í bita
1 - 2 bananar, afhýddir og skornir í bita
½ avókadó, afhýtt og skorið í bita
50 g spínat
50g alfalfaspírur ef vill
1 msk hvítt tahini
½ tsk alkaliveduft
nokkrir klakar
Setjið möndlu/sojamjólkina í blandara ásamt jarðaberjum + tófú og blandið vel saman. Bætið restinni af uppskriftinni útí og látið þetta blandast vel. Þessi er sérstaklega góður eftir ræktina eða bara sem hin fullkomna máltíð.
Græna limónan eða sítrónan
2 dl kókosvatn eða vatn
safi og hýði af 1 sítrónu eða limónu
1 lífrænt og grænt epli, skorið í fernt og steinhreinsað
100g spínat
¼ búnt fersk mynta (bara laufin ekki stöngullinn)
½ - 1 avókadó
Setjið kókosvatnið í blandara ásamt sítrónusafa + hýði og epli og blandið vel. Bætið restinni af uppskriftinni útí og blandið þar til allt er orðið silkimjúkt.
Grænn og kryddaður
2 ½ dl kókosvatn eða vatn
2 græn og lífræn epli, skorin í fernt og steinhreinsuð
2 msk ferskt dill
2 tsk ferskt rósmarin, smátt saxað
nokkrir klakar
Allt sett í blandara og blandað vel saman.
Molar
Vissir þú
að ananas innihaldur ákveðin ensým sem gera hann að náttúrulegu verkjalyfi? Þetta sýna rannsóknir frá Reading University
að ferskur kóríander (cilantro) er sagður virkur við að lækka kólesterólið í kroppnum?
Að avókadó inniheldur seratónin? Við Íslendingar ættum því að kannski að borða meira af því í skammdeginu .
solla
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.