10.8.2007 | 23:06
viðtal við viking
Framtíðarlandið mitt: Víkingur Heiðar Ólafsson |
Skrifað af Viðari Þorsteinssyni | |
12. Mar. 07 | |
Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari hlaut verðlaun sem flytjandi ársins á síðustu afhendingu Íslensku tónlistarverðlaunanna. Hann stundar nú nám í píanóleik við hinn virta Juilliard tónlistarskóla í New York. Framtíðarlandinu lék hugur á að kynnast sýn þessa unga listamanns á Framtíðarlandið Ísland. Nafn: Víkingur Heiðar Ólafsson Fæðingarár: 1984 Framtíðarlandið mitt: Í framtíðarlandinu óttumst við ekki þögnina heldur föðmum hana. Óþörf orð eru ósögð látin. Fyrsta mínúta hverrar klukkustundar er þagnarmínúta. Þá sameinast allir í líkamlegri slökun og innhverfri hugleiðslu í leit að kyrrð og jafnvægi og snúa til baka í endurnýjuðum tengslum við sinn innsta kjarna. Við lifum í meðvitund um karma lögmálið elskum hvort annað skilyrðislaust og álítum það mest okkar eigin gæfu að fá að hjálpa öðrum. Við höfum fyrir löngu misst áhugann á stanslausum samanburði við aðra því við höfum séð hundrað milljón dæmi um fullkomið vanhæfi efnishyggjunnar að skapa okkur þá vængi sem við öll þráum. |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.